Refund policy
Upplýsingar
Liðið Mitt varð til árið 2019
Litlikriki 4. Netfang: lididmitt@gmail.com
Þegar þú leggur inn pöntun hjá lididmitt.is samþykkir þú eftirfarandi skilmála.
Afgreiðsla og afhending pantana
Afgreiðslutími pantana er að jafnaði 1-5 virkir dagar. Allar pantanir eru sendar upp að dyrum eða á næsta pósthús. Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun. Einnig er hægt að sækja vörur í Litlakrika 4, 270 Mosfellsbæ
Sendingakostnaður fer eftir verðskrá póstsinns fyrir sendingar á pósthús.
Um pantanir sem eru sendar með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Búðin ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Búðinni til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Greiðslumöguleikar.
Liðið Mitt býður upp á val um að greiða með debetkorti, kreditkorti eða PEI Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valito, Liðið Mitt tekur því hvorki við né geymir kortaupplýsingar.
Þegar verslað er með Pei færð þú greiðsluseðil í heimabankann sem þú hefur 14 daga til að borga. Þú getur sótt um aukinn greiðslufrest með 30/60 þjónustunni eða dreift greiðslum á allt að 48 mánuði.
Ef þú vilt borga með Pei gerum við ekki kröfu um forskráningu í þjónustuna. Það er hægt að borga fyrir vörur eða þjónustu að upphæð 20.000 kr. eða lægra.
Verð
Liðið Mitt áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Ef varan er ekki til á lager látum við þig vita um væntanlegan komutíma eða endurgreiðum sé þess óskað.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Vörum er hægt að skila innan 14 daga eða fá henni skipt í aðra vöru eða fá hana endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort. Sé greitt fyrir vöruna með PEI er annað hvort hægt að fá inneign eða fella niður kröfuna í heimabanka sé hún ógreidd. Ef vara hefur verið gefin að gjöf þá er eingöngu boðið upp á vöruskipti eða inneignarnótu, ekki endurgreiðslu. Skilyrði er að koma með kvittun við vöruskil eða skipti.
Framvísa þarf kvittun við vöruskil eða vöruskipti. Vöru fæst eingöngu skilað eða skipt sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum og ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar samkvæmt kvittun.
Útsöluvöru fæst hvorki skipt né skilað.
Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Liðið Mitt
Gölluð vara
Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess óskað. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á lididmitt@gmail.com með upplýsingum um galla vörunnar.
Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila, nema svo beri skylda til gagnvart lögum. Allir sem versla hjá okkur eru skráðir sjálfkrafa á póstlistann okkar.
Fyrirvari
Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum.
Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á lididmitt@gmail.com